Hvað er að gerast

Auglýsing

Fréttir

Innskráningar kubbur

Sumar 2009

03. september 2009 klukkan 08:13
Sumarið er búið að vera ÆÐISLEGT. Ég held að þetta sé eitt besta sumarið mitt hingað til. Það byrjaði á ferð til Íslands með Martin og tengdaforeldrum mínum. Þar sem við fórum m.a. á ættarmót og í hringferð um landið. Ég var síðan í nokkra aukadaga á Íslandi og hafði það gott í faðmi fjölskyldunnar eftir að danirnir voru farnir heim.

Fljótlega eftir að við vorum öll komin til Köben aftur, kom Guðmundur hennar Auðar systur í 9 daga heimsókn. Hann er aðeins 7 ára en var svo duglegur að fljúga aleinn á milli landa (með smá hjálp frá flugfreyjum).
Við gerðum heilmargt á meðan hann var hér héldum m.a. upp á afmælið hans Martins, fórum í tívóli, í sund, í dýragarðinn, til Svíþjóðar í sumarhús og í minigolf. Hérna eru myndir frá ferðinni hans hingað:
Guðmundur

Ágúst er búinn að vera viðburðaríkur með brúðkaupi, grilli, gullbrúðkaupi, stelpuhitting, sumarbústaðaferð og Barcelona ferð. Það var einnig skírn hjá föðurfjölskyldunni hans Martins, en ég var því miður í Barcelona þá helgi. Ég hef aldrei hitt þá hluta af fjölskyldunni, þannig að ég var pínu spæld að þetta hafi verið á sama tíma.Hérna er ágúst í myndum.


Barcelona ferðin var yndisleg, við komum hinni spænsku Luciu á óvart á afmælinu hennar, hún grét af gleði þegar hún sá okkur vinkonurnar, það var ógleymanleg stund. Við eyddum síðan helginni í sumarbústað fjölskyldunnar í Costa Brava, þar sem það var stjanað við okkur alla dagana. Við kíktum aðeins á ströndina í nágrennið sem og á safnið hans Salvadors Dali sem er alveg ótrúlegt. Það var virkilega gaman að upplifa spænskan lifnaðarhátt. Ég gæti alveg hugsað mér að lifa þannig með siestu og alles :)
Hérna eru myndir úr ferðinni:
Barcelona

Ég kíki síðan til Íslands í nokkra daga í sept. til að hitta mína yndislegu fjölskyldu, mig langaði til að kíkja á minn litla stóra bróður, því hann verður þrítugur þegar ég verð þar og auðvitað verð ég að sjá þegar hann verður löglegt gamalmenni eins og við hin ;) 

Ég læt þetta duga í bili, en ég veit ég hef ekki verið dugleg að láta heyra frá mér, ég vona að þetta dugi sem smá "uppdeit". Ég hef annars frá fleiru að segja en ég verð að senda það í tölvupósti til viðkomandi, ég lofa að það gerist fljótlega ;)

Hafið það gott allir :)
Nanna Geirsdóttir
3 athugasemdir

April-maí 2009

25. maí 2009 klukkan 14:35
Ætla að reyna að útskýra með fáum orðum hvað april og mai hafa að mestu farið í :)

- Er að vinna á lítilli arkitektastofu.

- Páskar: mamma og pabbi komu í viku og spiluðu golf. Ég fór með þeim 
  2x og er alveg að fá golfbakteríuna

- Búið að vera gott veður síðan um páskana

- Búin að fara í afmæli, partý, Malmö, bókaklúbb, matarboð, 
  barnaheimsókn og 1.maí partý i Fælleparken (var þar ásamt 100 þús.
  manns)

- Er búin að panta ferð í sumar bæði til Íslands (21.júní -7.júlí minnir mig)
  og ferð til Barcelona í lok ágúst.

- Er farin að hlaupa 3x í viku (reyndar bara ræktinni) sl. 3vikur ekkert smá
  ánægð með það

- Náði að skera ágætt stykki af puttanum (í annað skipti á innan við 2
  mánuðum)

- Fór í helgar"vinnuferð" í sumarbústað tengdó (Snugge og Vagn) hérna eru
  myndir þaðan:
Sumarbústaður

- Elska lífið og er hamingjusöm :)

Hafið það gott allir
Nanna Geirsdóttir
4 athugasemdir

Vor 2009

15. maí 2009 klukkan 13:08
Það er sko tími til kominn til að tengja...ég meina blogga.

Verð að viðurkenna það að ég er ekki dugleg eða hef mikinn áhuga á því að setjast niður og skrifa hvað ég er að bralla hérna í DK.

Myndir segja meira en 1000 orð, þess vegna læt ég myndirnar duga í bili, þangað til næsta blogg kemur, so sorry.

Matarboð

Bókaklúbbur

Átsj-puttinn minn

Frændsystkinaparty

Hafið það gott og gaman þangað til næst :)
Nanna Geirsdóttir
Engin athugasemd

Feb.- mars 2009

16. mars 2009 klukkan 14:38

Það er sko búið að vera nóg að gera undanfarnar vikur og dagskráin er sko  einnig pökkuð næstu 2 mánuðina, svona á lífið að vera!!!

Ég ætla að byrja á Berlín. Þetta var æðisleg ferð, flugið tók rétt um 45 mín. við vorum nýkomin upp í loft þegar byrjað var að lækka flugið aftur, hef varla verið í jafn stuttu flugi áður, gat aðeins skoðað 1 slúðurblað á meðan!! Við gistum á góðu hóteli á mjög góðum stað. Við reyndum alla morgna að slappa af, þannig að við stukkum ekki af stað um 8 leytið. Eftir að hafa sofið sæmilega út hófum við skoðunarferðina okkar. Við gengum í ca. 6-8 klst. á dag, auðvitað með smá stoppi á kaffihúsum inn á milli. Það er svo margt að sjá í Berlin, það er auðveldlega hægt að vera þar í 2 vikur og hafa alltaf eitthvað nýtt til að sjá, þið þekkið það sem hafið verið þar.
Veðrið var þó ekki hið besta, eða 2-3 stiga hiti og vindur, það var samt betra en frost! Þetta var sem sagt góð æfing fyrir líkamann og þó að við lifðum ekki á hollustufæði þá efast ég að við að við bættum eitthvað á okkur út af öllu þessu labbi. Ég get ómögulega farið að telja upp alla sögufrægu staðina sem við sáum, við tókum þó myndir af þeim flestum og myndirnar eru hérna: Berlin

Auður systir kíkti svo í heimsókn 6-10.mars. Það var svo notalegt og gaman að hafa hana í heimsókn, á þessari stuttri heimsókn náðum við að fara til Svíþjóðar, hafa matarboð, fara í matarboð/kaffi, fara í smá búðarráp, bíó og einnig sofið og slappað af 2 morgna!!!
Tókum nokkrar
myndir í matarboðinu sem við héldum, matarboðið varð seinna að nokkurs konar partýi þegar það bættist aðeins í hópinn þegar líða tók á nóttina.
Hjartans þakkir fyrir komuna og takk fyrir mig elsku Auður.

Fór rúmum 2 vikum fór ég í Geggjað þrítugs afmæli og sl.föstudag hitti ég gamla vini mína úr skólanum, það er einhver sjúkdómur að ganga hjá þeim flestum en kærustur þeirra flestra eru óléttar!! Þeir hafa sem sagt lítið annað að gera í þessari heimskrísu :)
Eftir þetta partýástand (og því sem fylgir daginn eftir) sl.3 helgar er ég komin með nóg í bili og hlakka til að gera ekki neitt um næstu helgi, ætla bara að hafa það cozy með Martin mínum, fer reyndar í bókaklúbb(saumaklúbb) næsta fimmtudag, sem betur fer er það ekki djamm þó við fáum okkur 1-2 vínglös saman.

Ég held ég hafi ekki meira að segja í bili, ég er annars farin að drekka te á fullu eða 2-4 bolla á dag. Það er eitthvað sem ég hélt ég myndi aldrei gera, þetta er þó ekki ekta tedrykkja, því ég verð að hafa 1 sneið af sítrónu í pínku, pínku lítið af hunangi út, síðan er ég nýfarin að setja pínu chiliduft út, það gefur smá brennslutilfinningu í hálsinn sem er ótrúlega þægilegt.

Ég byrja á námskeiði eftir 2 vikur, mig langaði að kíkja aðeins til Íslands áður en ég byrja á því, þannig að ég kíki til Íslands frá 25-30. mars, þökk sé tilboði frá Iceland Express :) ( og 2 ónefndum aðilum).

Well, læt þetta nægja í bili af mér, hafið það gott allir :)

Nanna Geirsdóttir
1 athugasemd

Berlin

27. febrúar 2009 klukkan 16:58
Hérna eru myndir frá Berlínarferðinni okkar Martins, ég segi betur frá ferðinni seinna. Ferðin var annars ÆÐISLEG :)
Nanna Geirsdóttir
1 athugasemd

Jan. + feb. 2009

17. febrúar 2009 klukkan 13:41
 

Engar fréttir eru alltaf góðar fréttir :)

 

Það er langt síðan síðast, það er samt sem áður ekkert nýtt merkilegt að frétta.

Ég hef það mjög gott hérna í Köben. Ég er dugleg að fara á æfingar ég er byrjuð að fara 5-6 sinnum í viku í ræktina en það hefur ekki gerst síðan ég var í skólanum fyrir ári síðan.  Mér líður því nokkuð vel með sjálfa mig. Ég er líka farin að passa upp á það að ég fái mér nóg prótein fyrir vöðvana, en ég hef ekki passað upp á það áður, þannig að vonandi breytir það einhverju hjá mér.

Ég átti yndislegan afmælisdag í janúar og fékk æðislegar afmælisgjafir frá öllum, hjartans þakkir fyrir mig allir. Janúar var annars frekar rólegur,  við fengum bæði slæmt kvef í rúma viku, en ég hef ekki orðið veik/kvefuð síðan feb. Á síðasta ári, þannig að ég virðist ætla að hafa þetta árlegt sem er bara allt í goody, auðvitað væri best að sleppa alveg við veikindi.

Kolla frænka, Bjössi og Regína kíktu til okkar í smá sunnudagskaffi  í jan. Það var cozy að fá þau í smá heimsókn en Regína er algjört sjarmatröll og heillar alla upp úr skónum. Ég sakna þess að sjá ekki litlu nöfnu mína sem er orðin svo dugleg að labba um allt.

Ég og Snugge kíktum á eina nýfædda prinsessu í ættinni, í byrjun jan. Mér finnst ég sjái það á Snugge að hana langi pínu í eitt stk. Barnabarn þó hún tali ekki um það.

Sl.laugardag komu vinir okkar í mat og spilakvöld og sátum við til kl.3 um nóttina og spiluðum. Ég held að allir hafi unnið 1x í annað hvort Besservizzer eða Rummikub, þannig að það fór enginn tapsár heim.

Ég var í bókaklúbbi í gær ásamt 7 öðrum skvísum, við fengum geggjað gott pastasalat og Rauðvín með og við töluðum um allt milli heima og geima næstum því, nema eiginlega bókina!!! Þetta er því svipað og saumaklúbbar þar sem þetta er gott tilefni til þess að hittast. Við vorum annars að lesa  bókina Undtagelsen, sem er spennandi. Næst ætlum við að lesa Bavian eftir Naja Maria Aidt.

Eftir viku ætlum við Martin minn að kíkja til Berlínar í 4 daga. Við ætluðum í upphafi að fara til London, síðan fórum að skoða aðrar borgir og Berlín kom best út. Ég er svo spennt að fara þangað, því ég hef ekki komið þar áður. Það er auðvitað margt að sjá og gera í London og ég hef bara farið svo oft þangað þannig að Berlín var miklu meira spennandi kostur. Við gistum á 4 stjörnu hóteli á besta stað i bænum, þannig að þið getið skilið það að ég geti ekki beðið eftir því að fara J Bæði flug og gisting kostar aðeins 1200 DKK pr.per. þannig að þó að við eigum ekki mikin pening þá eigum við alla veganna efni á þessu. Það er það góða við Köben, það getur verið stutt og ódýrt að fara til annarra borga.

Auður systir kemur vonandi í heimsókn í byrjun mars, ég hlakka mikið til ef af því verður. Ég held að það sé nauðsynlegt fyrir hana að skipta aðeins um umhverfi og fá smá orku fyrir næsta skref í meðferðinni.

Páskarnir eru alveg óráðnir, tíminn líður hratt þannig að maður þarf að gera plön fljótlega. Pa+Ma koma kannski um páskana til að hafa það cozy og spila golf. Annars getur verið að ég (+Martin) förum til Íslands um páskana, þetta kemur allt í ljós fljótlega.

Síðan þarf maður að fara að huga sumrinu og gera plön, það verður margt um að vera á Íslandi í sumar, þannig að maður verður þar pottþétt eitthvað.  Allar áætlanir um það koma í næsta bloggi.

Hérna koma nokkrar myndir af íbúðinni okkar, það vantar myndir af nýja flotta baðherberginu sem og eldhúsinu, en ég á eftir að taka góðar myndir þar inni. Ég set þær inn fljótlega.

Well, well ég læt þetta duga í bili. Hafið það gott allir :)

Nanna Geirsdóttir
3 athugasemdir

Jól 2008 - myndir

26. desember 2008 klukkan 23:29
Ég er búin að hafa það yndislegt yfir jólin, því miður er ég búin að borða á mig gat og hafa það allt of gott og þarf því að vera dugleg í ræktinni og mataræði héreftir. Ég mun ekki geta leyft mér annað en hrökkbrauð og vatn næstu mánuði, mér er nær..... :) ok, ok, þið sem þekkið mig vitið að er ekki alveg satt, en ég þarf að fara aftur í heilsusamlega lífstíllin og ég hlakka bara til :)

Hérna koma nokkrar myndir frá jólaundirbúningi og jólunum 2008.

Hafið það gott allir :)
Nanna Geirsdóttir
3 athugasemdir

Jól 2008

20. desember 2008 klukkan 16:03
                  Gleðileg Jól og farsælt komandi ár allir saman :)
            Takk fyrir allar samverustundir á liðnum árum.



                       


Nanna Geirsdóttir
Engin athugasemd

Julefrokost

17. nóvember 2008 klukkan 15:09
Kominn tíminn á smá update. Hérna (myndir) eru myndir frá jólahlaðborði sem ég var í um síðustu helgi sem og þegar ég hitti gömlu skólafélagana þegar jólabjórinn kom. Það vær geggjað í jólahlaðborðinu, ég held ég hafi innbyrgt milli 5.000 og 10.000 kalíorur það kvöld!!! Þannig að núna er það bara hrökkbrauð og vatn næstu daga, þetta var annars alveg þess virði.

Ég mæli eindregið með bókinni : mænd der hader kvinder eftir Stieg Larsson. Ég las hana um helgina og gat gjörsamlega ekki lagt hana frá mér. Núna er ég svo tóm þegar ég er búin með bókina, því ég hef ekkert að lesa. Ég ætla að reyna að næla mér í hinar bækurnar sem Stieg hefur skrifað.

Pabbi og mamma koma í næstu viku, við Martin erum að vinna í því að gera allt fínt áður en þau koma, en við erum með eitt svefnherbergi og 1 gang sem á eftir að gera upp og gera fínt. Nýja baðhergið er að verða tilbúið, það vantar bara nokkra smáhluti.

Ég er ekki viss um hvenær ég fer til Íslands um jólin, því Martin fer sennilega til New York með vinum sínum í des. og ég ætla að reyna að plana ferðina heim í kringum það. Ég mun samt ekki eyða áramótunum á Íslandi :( því ég vil eyða eitthvað af hátíðunum með Martin mínum. Það verður gaman að komast heim til allra í laufabrauð og annan jólaundirbúning :)

Læt þetta duga í bili :) Hafið það gott allir

p.s.takk Halla fyrir að hringja um daginn, það var svo gaman að heyra í þér :)
Nanna Geirsdóttir
4 athugasemdir

OKTÓBER

28. október 2008 klukkan 17:07

Ok, ok, greinilega alveg komin tími á að blogga aðeins aftur. Nú er bara svo langt liðið síðan síðast og ég orðin svo gömul að ég man varla hvað ég hef verið að bralla síðan síðast. Ég skrifaði aldrei dagbækur þegar ég var yngri/lítil (Þormóður segir sennilega að ég sé ennþá lítil!!) og það mun ekkert breytast. Ég get bara ekki skrifað um mig eða um það sem er að gerast í kringum mig á hverjum degi alla ársins hring.

Nóg um það, í sept hummm, man ekki nógu mikið. Fór í ræktina, fór á djammið, fór í heimsóknir, fékk heimsóknir, hitti pabba út á flugvelli, endaði svo mánuðinn með nokkurra daga ferð til Íslands til þess að kíkja aðeins á liðið.

Október, það sama, fór í ræktina, fór á djammið, fór í heimsóknir, fékk heimsóknir, hitti Þormóð bróðir út á flugvelli,átti að fara til Amsterdam en komst ekki :( Fékk póstkort, JEIIII :) Martin fór til Feneyja og fékk svo sætar gjafir frá honum þegar hann kom tilbaka, hann er svo yndislegur.
Toppurinn á tilverunni í okt., ég fór í hádegismat í gær þar sem Mary krónprinsessa dana var líka. Ég talaði ekki við hana þó ég hafi haft tækifæri til þess. Hún er virkilega flott, hún Mary.
Pabbi og mamma ætla sennilega að kíkja í smá heimsókn til okkar Martins í lok nóv., það verður gaman að fá smá heimsókn frá Íslandi.

Ég og Martin erum alltaf að prófa nýjar og nýjar heilbrigðar uppskriftir og við erum svo ultra heilbrigð, ég er þó ekki orðin horrengla ennþá, það mun alveg taka einhverja mánuði. Martin þarf hins vegar að bæta aðeins á sig, það er samt mikilvægt fyrir hann lifa heilbrigt líka.

Ég ætla að kíkja á morgun til Kollu frænku og Regínu litlu dúllunar hennar, það er alltaf gaman að sjá þær mæðgur.

Niðurstöður: ekkert sérstakt nýtt um að vera hjá mér í sept og okt, ég er hamingjusöm og hef það gott, þrátt fyrir að sakna fjölskyldunnar. Það er erfitt að geta ekki verið hjá Auði og öllum öðrum til þess að hjálpa til.

Ég man ekki meira í bili, hafið það gott allir og gangi ykkur vel :)

Ykkar Nanna

Nanna Geirsdóttir
2 athugasemdir